Hafnarfjarðarmærin
þriðjudagur, janúar 04, 2005
 
Enn á Ísafirði :)
Þetta er nú búið að vera meira ævintýrið hérna fyrir vestan, hellingur af snjó og ofsaveður!! Eitt verð ég þó að segja að ástandið hérna er sko alls ekki eins slæmt og það virðist vera þegar að maður horfir á fréttirnar....hérna er bara búið að vera gaman að klofa snjóinn og leika sér :) Í dag var flugi enn og aftur aflýst þrátt fyrir það að ekkert hafi verið að veðrinu, en spáin var nú alls ekki of góð. Áðan skelltum við dóra okkur á spilakveld hjá kristni vini hennar hérna ofar í bænum, við spiluðum gettu betur (barna- og unglingaútgáfuna) og massaði mitt lið þetta sko algjörlega. Rétt eftir miðnætti var tekin sú ákvörðun að labba af stað heim þar sem að bylur var skollinn á.... en einhverra hluta vegna lægði honum strax og inní húsið var komið.
En jæja það er spurning hvernig fer með þetta á morgun varðandi flugið, kannski verður maður bara komin í höfuðstaðinn um hádegisbilið....hvur veit???



mánudagur, janúar 03, 2005
 
Gleðilegt nýtt ár!!!
Núna sit ég hérna heima hjá henni dóru hlín á ísafirði í aftakaveðri, ég átti pantað flug kl. 11:20 (því er amk frestað til kl. 14:30) og verður það að viðurkennast að ekki er útlit fyrir miklar samgöngur hérna í dag. það er nú bara ansi kósý að sitja inni undir sæng í svona veðri :)
Til ísafjarðar mætti ég á gamlársdagsmorgun í blíðskaparveðri, þrátt fyrir mjög vonda spá. Við dóra byrjuðum á því að versla og redda smástuffi fyrir kvartaldarafmælið hennar sem haldið var á nýársdag. Eftir reddingarnar var aðeins skellt sér uppí fjall á skíði, jih hvað það var gaman!! Það versta var að við náðum nú ekki löngum tíma þar sem að það fór að verða slatta hríð....en maður fékk allaveganna smjörþefinn af þessu og fékk tækifæri á að nota aðeins skíðin mín sem að haf því miður ekki verið mikið notuð síðan að ég keypti þau.
Svo fór að líða að kveldi og þá var hent sér í sparigallann og í dýrindismáltíð heima hjá fjölskyldu dóru. Horft var á skaupið og sprengt upp heima hjá frænda dóru þar sem allt frændfólkið kom saman. Ég verð nú að segja að áramótaskaupið var nú bara heldur flott...og fólk var bara með góðann húmor fyrir sjálfu sér!! Eftir skaupið fóru flestir út að sprengja, og gerðist það að ein rakettan skaust inní eldhús....sem betur fer varð enginn fyrir henni en prikið festist inní vegg. Eftir partýið var síðan skellt sér í partý og skemmt sér fram á nótt.
Á nýársdag var svo farið á fætur um hádegisbil og byrjað að gera ostapinna, snittur og allskonar fínheit fyrir ammælið hennar dóru og salurinn hafður til. Þetta var nú aldeilis flott ammæli hjá kellu...þetta var svona gala nýársfagnaður þar sem að allir mættu í sínu fínasta pússi. Veigarnar voru nú ekki litlar hjá henni dóru og var alveg heljarinnar fjör á staðnum. Um rúmlega sex um morguninn fórum við að tygja okkur heim á leið.
Í gær vorum við svo heldur góðar við okkur og sváfum til rúmlega tvö skelltum okkur svo í tiltekt á salnum og fórum svo á brennuna sem hafði verið frestað á gamlárskveld.
Jáh, þetta hafa aldeilis verið snilldarleg áramót!!! Enn er óvíst um heimkomu, en ég efast um að mér eigi eftir að leiðast enda nóg til dundurs.





Powered by Blogger